Slide background

Meistarar að verki

Alhliða verktakar

Smiðir - píparar - rafvirkjar - múrar - málarar

Sjá fyrri verk

Slide background

Vel skipulagðar hagkvæmar íbúðir

Nýbyggingar

Þar sem hver fermeter nýtist.

Sjá fyrri verk

Slide background

Reynsla og

Þekking

Þátttakendur í útboðsverkefnum síðan 2005

Hafa samband

Slide background

Tækjaleiga

Vörubíll með krana, Hjólagrafa, stórar og litlar skæralyftur og skotbómulyftari

Hafa samband

Húsasmíði

Sérstaklega vönduð hús, uppsteypt eða úr timbri með hitageisla í gólfum.

Iðnaðarhús

Við önnumst uppsetningu á iðnaðarhúsum í límtré eða stálgrind.

Innréttingar

Við leggjum parket og setjum upp innihurðir, og önnumst alla innréttingarvinnu.

Leitaðu tilboða hjá okkur þér að kostnaðarlausu.

Fá tilboð

Vörðufell er alhliða byggingafyrirtæki
sem annast alla byggingarvinnu.

Vörðufell var stofnað árið 2005 af þeim Unnari Steini Guðmundssyni og Valdimar Bjarnasyni. Félagið hefur byggst upp jafnt og þétt og er í dag orðið eitt af stærstu verktakafyrirtækjum Suðurlands. Í dag, 2023 vinna að jafnaði um 25-30 manns hjá fyrirtækinu auk þess að búa yfir góðri samvinnu við aðra verktaka á hinum ýmsu sviðum.

Unnar Steinn og Valdimar hafa fjölda ára reynslu sem húsasmíðameistarar, auk þess sem Unnar er byggingafræðingur og Valdimar viðskiptafræðingur.

Vörðufell hefur aðalbækistöðvar sínar að Gagnheiði 47 á Selfossi, auk þess sem opnað hefur verið skrifstofa með útibúi í Kópavogi að Auðbrekku 1.

Vörðufell er aðili að Meistarafélagi Suðurlands og hefur Valdimar Bjarnason verið kjörinn formaður félagsins síðastliðin ár.

Vörðufell hefur verið á útboðsmarkaði frá stofnun þess 2005 og unnið fyrir fjölda aðila svo sem : Selfossveitur, Sveitafélagið Árborg, Rangárþing-Eystra, Sveitafélagið Ölfus, Litla-Hraun, Þingvallanefnd, Nýi  Landspítali Háskólasjúkrahús, Hveragerðisbæ, Orkuveitu Reykjavíkur, Ríkiseignir, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Umhverfisstofnun ofl, ofl.
Á síðastliðnum 15 árum hefur Vörðufell byggt hátt í hundrað íbúðir á Suðurlandssvæðinu. Íbúðirnar hafa verið seldar á mismunandi stigum og kaupendur hafa fengið að koma að innra skipulagi íbúðar. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar, ýmist uppsteyptar eða byggðar úr timbri og hitageisli er í gólfum.
Vörðufell annast uppsetningu á iðnaðarhúsum hvort sem það er límtré eða stálgrind. Allt frá sökklum að lokafrágangi að innan. Vörðufell hefur byggt fjós, fjárhús og iðnaðarhús úr samlokueiningum svo nokkuð sé nefnt.
Vörðufell leggur parket og setur upp innihurðir og annast alla þá innréttingarvinnu sem krafist er.